Fréttir

Tombóla – tombóla!

Krakkarnir í öðrum bekk héldu tombólu í dag þar sem nemendur og starfsmenn komu með dót að heiman sem var ekki lengur í notkun. Verkefnið tengist bók vikunnar sem heitir Stórhættulega stafrófið og fjallar um Fjólu sem gengur í hús og safnar dóti á tombólu.
Lesa meira

Áfram Ísland !

Í dag mættu nemendur og starfsfólk í skólann klædd Íslandslitunum í tilefni landsleiksins í dag. Sveindís Jane okkar er að keppa með landsliðinu í dag og vildu nemendur og starfsmenn senda henni og liðinu risa stuðningskveðju! Áfram Ísland! A landslið kvenna mætir Lettlandi í undankeppni EM 2022 á Laugardalsvelli í dag, fimmtudag, og hefst leikurinn kl. 18:45. A landslið kvenna mætir Lettlandi í undankeppni EM 2022 á Laugardalsvelli í dag, fimmtudag, og hefst leikurinn kl. 18:45.
Lesa meira

Dagur náttúrunnar

Í tilefni af Degi náttúrunnar sem er haldinn hátíðilegur 16. september ár hvert unnu nemendur í 1. bekk áhugaverð verkefni í tengslum við daginn. Margt var skoðað og rannsakað og voru nemendur duglegir að nýta sér þann efnivið sem í boði var.
Lesa meira

Skólastarf fer vel af stað hjá 1. bekk.

Fyrstu dagarnir okkar fóru í að kynnast kennslustofunni og að læra að vera saman í bekk. Einnig fórum við í vettvangsferð út í móa og tíndum ber. Sjá skemmtilegar myndir með fréttinni.
Lesa meira

Námsmaraþon 7. bekkjar

Nemendur í 7. bekk báru út til bæjarbúa beiðni um styrk sl. mánudag í góðu veðri. Þeir eru að safna fyrir ferð bekkjarins á Skólabúðirnar að Reykjum í Hrútafirði sem verður í febrúar á næsta ári. Nemendur ætla að þreyta námsmaraþon næstkomandi þriðjudag, 22. september í 12 klst. Við óskum eftir stuðningi ykkar kæru íbúar Suðurnesjabæjar. Kt:671088-5229, Rn: 0147-05-410302 Með fyrirfram þökk nemendur 7. bekkjar Sandgerðisskóla.
Lesa meira

Alþjóðlegur dagur læsis

Þriðjudaginn 8. september var alþjóðlegur Dagur læsis og Sandgerðisskóli hélt upp á daginn með ýmsum hætti. Rætt var um mikilvægi læsis og áhersla lögð á fjölbreyttar leiðir í vinnu með læsi. Nemendur hlustuðu meðal annars á kennara lesa sínar uppáhalds bækur, sökktu sér sjálfir í yndislestur eða lásu bækur og prufuðu að semja sögur í sama stíl.
Lesa meira

Verkval í heimilisfræði

Verkval í heimilisfræði á miðstigi fer vel af stað þetta skólaárið og er kennt tvisvar sinnum í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum. Þriðjudagshópurinn útbýr matreiðslumyndbönd í bakstri eða eldun allt eftir áhugasviði hvers nemenda og samþykki kennarans en þeir fá að vera með í vali á hugmyndum af uppskriftum. Og fimmtudagshópurinn fylgir eftir uppskriftum frá kennara og bakar ýmsilegt hollt og gott. Nemendur eru einnig að læra að nota önnur hráefni í stað hvítan sykurs í bakstri t.d. ávexti.
Lesa meira

Umferðaröryggi skólabarna

Umferðarvefurinn er fræðsluvefur um umferðarmál fyrir nemendur í grunnskólum, kennara og foreldra. Af gefnu tilefni bendum við á að ný umferðarlög nr. 77/2019 tóku gildi þann 1. janúar 2020.
Lesa meira

Kórónuveiran – upplýsingar

Hér má finna ýmsar praktískar upplýsingar er varðar starfsumhverfi grunnskóla í tengslum við kórónuveiruna, þegar spurningar vakna varðandi hin ýmsu mál er tengjast áhrifum veirunnar beint eða óbeint. Aðstæður hérlendis breytast hratt þessa dagana og ljóst að áhrif kórónuveirunnar / COVID-19 eru gríðarleg á allt samfélagið.
Lesa meira

Skemmtileg fjöruferð hjá 6. bekk

Nemendur í 6.bekk fóru í skemmtilega fjöruferð mánudaginn 31. ágúst og fundu fullt af flottum hlutum og dýrum. Gaman var að fylgjast með áhuga nemenda en þeir stóðu sig eins og hetjur, voru duglegir að grafa í sandinum og lyfta upp steinum til að finna lífverur.
Lesa meira