- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Suðurnesjabær er heilsueflandi samfélag með skýra framtíðarsýn í mennta- og tómstundamálum. Áhersla er á hæfni til framtíðar með gæði í forgrunni og jöfn tækifæri fyrir öll.
Mennta- og tómstundastefna Suðurnesjabæjar markar framtíðarsýn í mennta- og tómstundamálum og á erindi til alls samfélagsins. Stefnan setur skýran ramma um áherslur í málaflokkunum: Jöfn tækifæri fyrir öll, lærdómssamfélag, hæfni til framtíðar, heilsueflandi samfélag og gæði í forgrunni. Meginmarkmið stefnunnar er að ná fram eftirsóknarverðum árangri til þess að öll hafi tækifæri til að auka við færni sína. Lykilþættirnir leggja grunn að framtíðarsýn íbúa samfélagsins.
Hver skólastofnun getur markað sína eigin starfs- og verkefnaáætlun í samræmi við stefnu bæjarfélagsins en hefur að öðru leyti frjálsar hendur um skipulag og framkvæmd skólastarfs.
Smellið á mynd til að lesa Mennta- og tómstundastefnu og aðgerðaráætlun Suðurnesjabæjar