Vinaliðaverkefni í Grunnskólanum í Sandgerði

Vinaliðaverkefnið er að hefja göngu sína í skólanum okkar á næstu vikum. Vinaliðaverkefnið er norskt að uppruna og hefur það verið starfrækt í hundruðum skóla þar síðast liðin ár.  Vinaliðaverkefnið gengur út á það að hvetja nemendur til meiri þátttöku í afþreyingu í frímínútunum og skapa betri skólaanda. Við byrjum með 5. - 7. bekk en stefnum á vinnu með fleiri bekkjum í haust. Aðal markmiðið með þessu verkefni er að bjóða öllum nemendum skólans fjölbreyttara úrval afþreyingar í frímínútum, þannig að sem flestir nemendur skólans finni eitthvað við sitt hæfi.  Markmið okkar er að allir nemendur skólans hlakki til að mæta í skólann sinn og njóti sín í frímínútum, alla daga. Einelti Skólalóðin og frímínúturnar eru samkvæmt eineltisrannsóknum, því miður, einn helsti vettvangurinn fyrir einelti. Vinaliðaverkefnið er ekki eineltisáætlun heldur stuðningsverkefni við eineltisáætlun skólans og er hugmyndafræðin sú að þar sem boðið er upp á skipulagt starf, fái mögulegir gerendur eineltis aðra hluti til að hugsa um. Aðgerðarleysi getur verið rótin að neikvæðum hlutum. Val/vinnuframlag Nemendur í 5. til 7. bekk velja einstaklinga úr bekkjunum sem fá hlutverk Vinaliða en þeir hafa svo umsjón með að koma leikjum og afþreyingu í gang og taka til eftir leikina. Nemandi sem er valinn til að gegna hlutverki Vinaliða starfar í hálft ár í senn (fram á vor til að byrja með). Vinaliðinn vinnur að verkefninu í löngu frímínútum skólans, tvo daga í viku, mánudag og miðvikudag eða þriðjudag og fimmtudag. Vinaliðinn mætir einnig á fundi þar sem starfið í frímínútum er skipulagt og vangaveltur sem því tengjast eru ræddar. Það er ekkert sem segir að Vinaliði geti ekki verið valinn aftur, hópurinn tilnefnir þá nemendur sem honum finnst passa í starfið hverju sinni. Við val á Vinaliðum eru nemendur skólans sérstaklega beðnir um að tilnefna einstaklinga sem þeim finnst vera vingjarnlegir og sýni öðrum nemendum virðingu. Ef vafi leikur á heilindum nemandans, getur umsjónarkennari frestað starfi hans sem Vinaliða til næsta tímabils. Hreyfing og skemmtun á venjulegum skóladegi Mikilvægt er fyrir börn og unglinga að fá fjölbreytta hreyfingu og skemmtun og er það nauðsynlegur hluti af þroska þeirra, enda hafa rannsóknir sýnt að það er samhengi milli hreyfingar og námsgetu. Við viljum því að framboð af hverskonar hreyfileikjum og annarri afþreyingu í frímínútunum sé fjölbreytt og skipulagt þannig að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Vinaliðaverkefnið er okkar leið til að mæta þessu, en í verkefninu eru settir upp leikir og afþreying af nemendum og á þeirra forsendum. Nemendur skólans hafa svo að sjálfsögðu val um hvort og þá hvaða leikjum þeir taka þátt í. Þátttaka í samfélaginu Við leggjum áherslu á að nemendur sem taka að sér starf Vinaliða fái innsýn í samfélag sitt og tilfinningu fyrir viðburðum og því menningarstarfi sem er í nærsamfélaginu. Þetta er gert til að Vinaliðarnir geti orðið kveikja að þátttöku nemenda og skólans alls í menningu samfélagsins. Vinaliðar fá því afhent samfélagskort þegar þeir hefja störf í Vinaliðaverkefninu, en samfélagskortið veitir þeim afslátt eða frían aðgang að ýmsum viðburðum, söfnum, íþróttamiðstöðvum og fleiru. Leikjanámskeið Við upphaf starfs Vinaliðans er haldið leikjanámskeið fyrir alla Vinaliða í skólanum. Á námskeiðinu er farið í leiki úr handbókinni „Leikir í frímínútunum“ sem er gefin út af Vinaliðaverkefninu og Vinaliðunum kennt að koma leikjunum í gang og hvernig hægt er að hvetja aðra til að taka þátt. Að auki sitja Vinaliðarnir á stuttum fyrirlestri um hlutverk Vinaliðans. Umsjón/upplýsingar Í Grunnskólanum í Sandgerði eru Konný Hrund Gunnarsdóttir og Fanney Friðriksdóttir umsjónarmenn verkefnisins.