Vinabekkir úti að ganga í Heilsuvikunni - allt á iði í skólanum

Vinabekkirnir 4. og 9. fóru saman út að ganga í heilsuvikunni. Fóru bekkirnir í göngutúr þar sem stoppað var og farið í leiki eftir 20 mínútna göngu. Nokkuð blautt var og blotnuðu margir á leiðinni en skemmtu sér vel. Það er alltaf gott að fara í létta göngu í svona góðu veðri.

Heilsuvikan í Sandgerði er í fullum gangi þessa dagana en nemendur byrjuðu mánudaginn á léttri stólaleikfimi og fóru svo út að ganga á þriðjudeginum.