Vettvangsferð í fjárhúsið

Í gær fóru nemendur í 3.bekk í vettvangsferð og var förinni heitið í heimsókn í fjárhúsið hjá Jóni bónda og var tekið vel á móti okkur. Nemendur fengu að halda á nýfæddum lömbum og fræðast um kindurnar. Þrátt fyrir mikla rigningu skemmtu allir sér vel.

Við þökkum Jóni kærlega fyrir.