Upplestrarkeppnin í 7. bekk.

Hátíð Stóru upplestrarkeppninnar verður haldin í DUUS húsum í dag kl. 16:30. 
Júlíus Viggó og Thómas keppa fyrir hönd Grunnskólans í Sandgerði. Þeir eru búnir að vera duglegir að æfa sig og hafa sýnt mikinn áhuga. Sjá má viðtal við þá félaga ásamt öðrum keppendum í Vikurfréttum í þessari viku. 

Í ár munu keppendur lesa upp úr bókinni „Ertu Guð afi?“ eftir Þorgrím Þráinsson og lesa ljóð eftir Erlu ( Guðfinnu Þorsteinsdóttur).

Öllum er velkomið að koma og horfa á keppnina.