Þorgrímur Þráinsson – Vertu ástfanginn af lífinu!

Í gær heimsótti Þorgrímur Þráinsson nemendur í 10. bekk með fyrirlesturinn ,,Verum ástfangin af lífinu”. Í fyrirlestrinum fjallar Þorgrímur um mikilvægi þess að vera sinnar eigin gæfu smiður. Þorgrímur ræddi við nemendur um samskipti við vini og fjölskyldu, mikilvægi hreyfingar, töfra markmiðasetningar, hvernig á að rækta hæfileika sína, baráttuna við kvíða og hvernig hver og einn  getur orðið betri manneskja.

Þorgrímur náði vel til nemenda og gaf sér tíma til að spjalla og svara spurningum. Við þökkum Þorgrími kærlega fyrir komuna.

Þorgrímur Þráinsson - Verum ástfanginn af lífinu Þorgrímur Þráinsson - Verum ástfanginn af lífinu