- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Í gær fengu nemendur í 6., 8. og 10. bekk í Sandgerðisskóla kennslu og þjálfun í endurlífgun frá Þórnýju skólahjúkrunarfræðingi HSS.
Árið 2018 ákvað Þróunarmiðstöð heilsugæslu á landsvísu að innleiða sambærilegt verklag hérlendis undir íslenska heitinu Börnin Bjarga. Haustið 2019 var þessu verkefni hleypt af stokkunum hér á landi og kennsla í endurlífgun er því orðin hluti af skyldufræðslu skólahjúkrunarfræðinga um allt land. Allir nemendur í 6., 8. og 10. bekk munu árlega fá þjálfun og kennslu í endurlífgun,með áherslu á hjartahnoð.
Þetta er vissulega stórt skref og metnaðarfullt verkefni, en tilhugsunin um að einhvern tíma verði allir Íslendingar, 11 ára og eldri, búnir að fá kennslu í endurlífgun er býsna góð – og rúmlega það.
Smellið hér til að sjá fleiri myndir úr kennslustundinni.
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is