Starf laust til umsóknar

Grunnskólinn í Sandgerði auglýsir eftir almennum starfsmanni í 50-60% stöðugildi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Vinsamlegast sendið umsókn með upplýsingum um nám, fyrri störf og almennar upplýsingar á Fanneyju D. Halldórsdóttur, skólastjóra (fanney@sandgerdisskoli.is ). Umsóknafrestur er til miðvikudagsins 14. janúar 2015.