Staða grunnskólakennara laus til umsóknar vegna forfalla

Auglýst er til umsóknar tímabundin staða grunnskólakennara við Grunnskólann í Sandgerði, vegna forfalla. Við leitum að einstaklingum með kennsluréttindi sem hafa góða og faglega þekkingu af kennslu og vinnu með börnum og unglingum. Við viljum ráða jákvætt og kraftmikið fólk til starfa. Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða, öflugra samskiptahæfileika og mikils sveigjanleika. Karlar jafnt sem konur er hvattir til að sækja um starfið.

Umsókn um starfið skal senda bréflega til skólastjóra með náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af leyfisbréfi.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.sandgerdisskoli.is og nánari upplýsingar um starfið má nálgast hjá skólastjóra, Fanneyju D. Halldórsdóttur (fanney@sandgerdisskoli.is) eða Elínu Yngvadóttur, aðstoðarskólastjóra (eliny@sandgerdisskoli.is) eða í síma 420-7500.