Skýið hlýtur styrk

Fulltrúi frá Skýinu ásamt  Þorsteini Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra Blue Car Rental
Fulltrúi frá Skýinu ásamt Þorsteini Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra Blue Car Rental

Skýið sem er eftirskólaúrræði fyrir nemendur  5. –10. bekk úr Sandgerðisskóla, Gerðaskóla og Stóru-Vogaskóla var svo einstaklega heppið að fá styrk frá Blue Car Rental í kjölfarið af Góðgerðar-Festinu þeirra sem haldið var nú á dögunum. Fjárhæðin mun nýtast til þess að kaupa skynörvunarvörur og fleira sem mun gagnast starfsemi Skýsins.

Það var fulltrúi frá Skýinu sem tók á móti styrkveitingunni ásamt Heiðu Rafnsdóttur umsjónarmanni Skýsins. 

Sandgerðisskóli þakkar kærlega fyrir þessa rausnarlegu gjöf, hún mun nýtast nemendum okkar vel.

Góðgerðarfest Blue_styrkur

Góðgerðarfest Blue