Skólaslit og afmælishátíð skólans



Kæru nemendur og foreldrar/forráðamenn

Við í Grunnskólanum í Sandgerði viljum bjóða þér og fjölskyldu þinni til 75 ára afmælishátíðar skólans þann 5. júní kl.10:00. Vera við skólaslit hjá nemendum  í 1. - 7. bekk, skoða skólann og þiggja veitingar.


Nemendur í 8.-10.bekk mæta til skólaslita kl.14:00
Þá er sameiginleg athöfn á sal en að henni lokinni fara nemendur í 8. og 9. bekk í sínar heimastofur, taka við vitnisburði sínum og kveðja kennara sína og stuðningsfulltrúa. Nemendur í 10. bekk eru áfram á sal, ljúka þar sinni athöfn og þiggja kaffiveitingar ásamt starfsfólki skólans og gestum sínum í boði foreldra.

Foreldrar og forráðamenn eru hjartanlega velkomnir með börnum sínum.

Bestu kveðjur,
starfsfólk Grunnskólans í Sandgerði.