Skólamjólkurdagurinn

Fjórtándi alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn verður haldinn hátíðlegur víða um heim þann 24. september næstkomandi. Það er stofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO (Food and Agriculture Organization) sem hvetur til hátíðarhalda á þessum degi og á Íslandi er haldið upp á hann undir kjörorðunum “Holl mjólk og heilbrigðir krakkar”. 

Með deginum vill Fræðslunefnd mjólkuriðnaðarins vekja athygli barna, foreldra og starfsfólks skólanna á mikilvægi mjólkur í daglegu fæði barnanna. Í tilefni dagsins verður þeim leikskólum og grunnskólum sem óska eftir því að taka þátt í deginum boðið upp á mjólk á skólamjólkurdaginn.

Öllum nemendum í Grunnskólanum í Sandgerði stendur til boða að fá Létt-Mjólk að gjöf í skólanum í tilefni dagsins.