- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Sigga Dögg kynfræðingur kom í heimsókn til okkar á bókasafnið sl. mánudag. Hún las upp úr nýjustu bókinni sinni Daði sem er sjálfstætt framhald bókarinnar KynVeru sem kom út 2018. Sagan um Daða fjallar um ungan dreng sem glímir við ástina, ástarsorg, sjálfsmyndina o.fl. Daði spilar sig svalan fyrir félögunum og stelpunni sem hann er skotinn í en undir yfirborðinu krauma mótsagnakenndar tilfinningar sem Daði reynir að átta sig á og vinna úr. Bókin byggir á algengum spurningum og umræðum drengja úr kynfræðslu Siggu Daggar. Sigga Dögg spjallaði við unglingana okkar um bókina og svaraði spurningum þeirra. Heimsóknin var mjög vel heppnuð og voru unglingarnir mjög ánægðir með hana.
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is