Samskiptadagur miðvikudaginn 20. febrúar

Miðvikudaginn 20. febrúar verður samskiptadagur í Sandgerðisskóla. Markmið með samskiptadegi er m.a að foreldrar, nemandi og kennari ræði saman um náms- og félagslega stöðu nemandans og að tekin sé sameiginleg ákvörðun um næstu markmið hans. Tímabókanir eru með rafrænum hætti í gegnum Mentor kerfið. Við biðjum ykkur því um að fara inn á www.mentor.is og bóka ykkar viðtalstíma þar. Hægt er að byrja að skrá sig í viðtöl miðvikudaginn 13.febrúar kl.8:15 Lokadagur skráningar er kl.12:00, föstudaginn 15.febrúar. Sýnishorn úr Mentor. Þeir sem eiga fleiri en eitt barn í skólanum eru hvattir til þess að skrá sig sem allra fyrst, eftir að skráning hefst til að fá viðtalstíma í röð hjá mismunandi kennurum. Ykkur er bent á að hafa samband við umsjónarkennara ef þess þarf. Á meðfylgjandi slóð er hægt að skoða myndband um hvernig á að bóka foreldraviðtal í gegnum Mentor. https://www.youtube.com/watch?...