Öskudagur - Dagskrá Skýjaborgar

Ákveðið hefur verið að breyta skipulagi Öskudagsins og einnig hefur verið ákveðið að hætta að veita viðurkenningu fyrir flottasta búninginn. Enn það er jafnframt alltaf jafn gaman að sjá alla í sínum flottasta búningi. Skipulagið í ár því þannig háttað: 1.-4.bekkur kemur beint eftir skóla í íþróttahúsið til að slá köttinn úr tunnunni og í smá leiki. 5.-7.bekkur fá Diskó frá kl.17.00-19.00 í Skýjaborg. Gos og snakk í boði ;-) 8.-10.bekkur verða í íþróttahúsinu frá kl.20.30-22.00 í Jógaboltafótbolta eða höfðingjaleik :-) Gleðilegan Öskudag Elín Björg Gissurardóttir Forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Skýjaborg