Norræna skólahlaupið - 16. október

Nemendur og starfsfólk Grunnskólans í Sandgerði hlupu í norræna skólahlaupinu miðvikudaginn, 16. október. Veðrið lék við okkur og allir höfðu bæði gott og gaman af hressandi útivist í góðra vina hópi. Eldri nemendur gátu valið á milli þess að fara 7 eða 10 KM en yngri nemendur völdu á milli þess að fara 2,5 eða 5 KM vegalengd.

Myndir frá skólahlaupinu er að finna í myndasafni HÉR.