- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Nemendur Grunnskólans í Sandgerði munu hlaupa í norræna skólahlaupinu miðvikudaginn, 16. október. Allir nemendur eru hvattir til að koma í góðum skóm og klæðnaði, til útivistar, eftir veðri.
Norræna skólahlaupið fór fyrst fram á Íslandi árið 1984, en allir grunnaskólar á Norðurlöndunum geta tekið þátt í hlaupinu á hverju hausti.
Markmið
-með norræna skólahlaupinu er leitast við:
Með norræna skólahlaupinu er keppt að því að sem flestir (helst allir) séu þátttakendur. Þeir skólar sem þess óska geta þó að eigin frumkvæði komið á keppni milli einstakra bekkja, t.d. hvaða bekkur hleypur flesta kílómetra miðað við fjölda nemenda. Einnig mætti koma á keppni milli skóla með svipuðum hætti. Hver skóli sendir ÍSÍ skilagrein um árangur sinn þar sem fram kemur hve margir tóku þátt í hlaupinu og hve langt hver þátttakandi hljóp.
Þátttakendur geta valið hve langt þeir hlaupa þ.e. 2.5 km, 5 km eða 10 km. Að hlaupinu loknu fær hver þátttakandi og hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá árangri og heildarúrslit birt í fjölmiðlum og send út til skólanna. Það skal tekið fram að hér er fyrst og fremst lögð áhersla á holla hreyfingu og að allir taki þátt. Mjólkursamsalan, MS, hefur styrkt útgáfu viðurkenningarskjala á myndarlegan hátt og samstarfsaðili að þessu verkefni er Íþróttakennarafélag Íslands.
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is