Nemendaráðið lætur gott af sér leiða með kökusölu

Nemendaráð Sandgerðisskóla
Nemendaráð Sandgerðisskóla

Nemendafélag Sandgerðisskóla stóð fyrir fjáröflun á bleika deginum þann 23. október þar sem þau buðu til sölu kökusneið frá Sigurjónsbakarí og mjólk eða safa með. Kökusneiðin var seld á 500kr. stykkið. Salan gekk mjög vel og seldu þau um 270 sneiðar og söfnuðust 140.000kr. Nemendafélaginu fannst það mest viðeigandi að styrkja málefni sem tengdist börnum og ætlar að styrkja Styrktarfélag Krabbameinssjúkra Barna eins og við höfum gert síðustu tvö skipti.

Nemendafélagið þakkar góðar móttökur í sölunni og er stolt að því að styrkja gott málefni.

Styrktarfélag Krabbameinssjúkra barna

Smellið hér til að sjá myndir frá deginum