Námsmaraþon í 7. bekk

7. bekkur er á fullu í námsmaraþoni en þau ætla að læra í 12 tíma. Þau söfnuðu áheitum því þau eru að safna pening fyrir ferðina í skólabúðirnar á Reykjum. Þau nota meirihlutann af tímanum við að æfa sig fyrir samræmdu prófin en einnig brjóta þau daginn upp með því t.d. að fara í sund, leiki og panta pizzu.