Litlu jólin

Litlu jólin hjá 1.-10.bekk eru miðvikudaginn 20.desember. Nemendur mæta prúðbúnir í sínar umsjónarstofur kl.11:00. Hátíðarmatur kl.11:15 Litlu jólin í skólastofunni. Dansa í kringum jólatréð kl.12:30. Nemendur eiga að koma með kerti og pakka, pakkinn má kosta kr. 500-1000.- Skóladegi lýkur kl.13:15.