Litla upplestrarkeppnin

Árgangur 2014
Árgangur 2014

Litla upplestrarkeppnin fór fram á sal Sandgerðisskóla í vikunni, en þar fluttu nemendur í 4. bekk fjölbreytta texta á sviði. Meginmarkmið keppninnar er að nemendur þjálfist í að flytja íslenskt mál, sjálfum sér og öðrum til ánægju og segja má að litla upplestrarkeppnin sé undirbúningur fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem haldin er ár hvert í 7. bekk. Nemendur höfðu æft af kappi seinustu vikur og stóðu allir sig með glæsibrag.

Nemendur í hljóðfæravali 4. bekkjar fluttu einnig nokkur lög sem þeir hafa verið að æfa í Tónlistarskólanum í vetur og fulltrúar 7. bekkjar í Stóru upplestrarkepnninni lásu fyrir gesti. Að hátíð lokinni buðu nemendur 4. bekkjar foreldrum sínum í pálínuboð sem heppnaðist einstaklega vel. Takk fyrir komuna.

Smellið hér til að sjá myndir frá hátíðinni.

 Litla upplestrarkeppnin

Litla upplestrarkeppnin 

Litla upplestrarkeppnin