Listgreinadagur - skertur nemendadagur

Verkefni frá Listgreinadegi 2024
Verkefni frá Listgreinadegi 2024

Þriðjudagurinn 18. mars er skertur nemendadagur samkvæmt skóladagatali og er hann tileinkaður myndlistarkennslu barna og ungmenna.

🎨 Nemendur mæta í skólann kl. 10:00 og lýkur skóladegi að loknum hádegisverði um kl. 12:00

🎨 Íþrótta- og sundtímar falla niður þennan dag.

🎨 Skólasel og Skýið opnar að loknum skóladegi fyrir þá nemendur sem eru skráðir þar.

Listgreinadagurinn okkar er byggður á Sjónlistardeginum sem er samnorrænn viðburður þar sem sjónum er beint að mikilvægi myndlistarkennslu og þá einkum og sér í lagi kennslu barna og ungmenna. Tilefnið er nýtt til að útbreiða fagnaðarerindi myndlistarinnar með útgáfu á hugmyndum og verkefnum sem geta nýst kennurum á öllum skólastigum.