Laus störf næsta vetur í Grunnskólanum í Sandgerði

Grunnskólakennari

Viltu starfa í uppbyggilegu og metnaðarfullu umhverfi? Við Grunnskólann í Sandgerði vantar áhugasama grunnskólakennara sem vilja taka þátt í uppbyggilegu og metnaðarfullu starfi. Alls eru 230 nemendur í 1.-10. bekk í Sandgerði. Sjá nánar á heimasíðu skólans www.sandgerdisskoli.is.

Skólinn óskar eftir grunnskólakennurum í eftirfarandi störf:

Umsjón á yngsta- mið- og elsta stigi

Umsjónakennarar á yngsta- og miðstigi kenna flest allar námsgreinar í sínum umsjónarhópi

Tölvukennslu, forritun

Stærðfræði á unglingastigi

Dönsku

Leiklistarkennslu

Samfélagsfræði/þjóðfélagsfræði á mið- og elstastigi

Sérkennara

Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af kennslu og starfi með börnum. Auk þess er mikilvægt að einstaklingurinn búi yfir góðri samskiptahæfni, sé stundvís, ábyrgur og tilbúinn til samstarfs og vinnu að þróunarverkefnum innan skólans. Umsjónarkennarar yngsta stigs þurfa að þekkja til PALS lestrarkennsluaðferða og vera tilbúnir að vinna eftir því kerfi.

Leiðarljós skólans eru vöxtur, virðing, vilji og vinátta og endurspeglast þau í daglegu starfi skólans. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar og er Heilsueflandi skóli.

Viðkomandi grunnskólakennari þarf að vera tilbúinn að setja sig inn í starfshætti skólans og geta hafið störf frá og með 1. ágúst 2015.

Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl 2015.

Nánari upplýsingar veitir:

Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, skólastjóri fanney@sandgerdisskoli.is og

Elín Yngvadóttir, aðstoðarskólastjóri eliny@sandgerdisskoli.is .

Sími skólans er 420 7550