Kósýdagur hjá nemendum 4. bekkjar

Kósýdagur - árgangur 2011
Kósýdagur - árgangur 2011

Nemendur 4. bekkjar þreyttu samræmd próf í vikunni og í tilefni af því var ákveðið að hafa kósýdag í dag. Nemendur mættu í náttfötum og eða kósýgöllum, horfðu á myndina Flubber sem fæstir nemendur í bekknum höfðu séð og fengu skúffuköku í nestistíma. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þá skemmtu nemendur sér vel.