Íþróttadagurinn á morgun 2. okt. - Koma klædd eftir veðri

Hinn árlegi íþróttadagur verður haldinn hátíðlegur á morgun, fimmtudaginn 2. október. Hann verður með hefðbundnu sniði þetta árið en nemendur mæta í skólann kl. 8.15 samkvæmt stundatöflu í skólann. Mikilvægt er að nemendur komi klæddir eftir veðri því skipulögð dagskrá verður frá kl. 9 - 10 utandyra. Eftir dagskránna utandyra verður keppni nemenda 10. bekkjar á móti kennurum skólans í íþróttahúsinu. Nemendur fara svo í sínar stofur og klára daginn samkvæmt stundatöflu.