Innritun á Skólasel/frístund skólaárið 2024-2025

Búið er að opna fyrir innritun á Skólasel/frístund fyrir skólaárið 2024-2025

Skólasel býður upp á samfelldan dag fyrir nemendur í 1.– 4. bekk að loknum skóladegi til kl. 16:15 mánudaga til föstudaga frá og með 22. ágúst 2024.

Á Skólaseli  er skipulögð  dagskrá   þar  sem  hugað  er  að  frjálsum leik, listum, hreyfingu  og  næringu.

Síðdegishressing kemur alla daga frá Skólamat.

Skólasel er lokað í jóla- og páskafríum og á starfsdögum skólans. Á samskiptadögum er Skólasel opið frá kl.8:15 -16:15. 

Á tilbreytingardögum opnar Skólasel jafnan um leið og skóla lýkur, það er auglýst sérstaklega hverju sinni.

Nánari upplýsingar um kostnað og starfsemi Skólasels má lesa hér.

Rafræn innritun

Athugið að skráning frá fyrra skólaári endurnýjast ekki sjálfkrafa.