Hugsanleg vinnustöðvun grunnskólakennara

Kæru foreldrar/forráðamenn
Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Félag grunnskólakennara boðað vinnustöðvun dagana 15., 21. og 27. maí næstkomandi , hafi ekki náðst samningar á milli FG og samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Ef til kemur fellur niður öll kennsla í skólanum samkvæmt stundaskrá en Skólasel mun opna kl. 13:15 venju samkvæmt. Skrifstofa skólans verður opin, skólastjórnendur og annað starfsfólk sem ekki eiga aðild að Félagi grunnskólakennara verða við vinnu. Við biðjum ykkur að fylgjast vel með fréttum.