Grunnskólinn í Sandgerði sér nemendum fyrir öllum námsgögnum

Sú nýbreytni hefur nú verið tekin upp í Sandgerðisbæ að grunnskólanemendur fá öll námsgögn í skólanum. Nemendur þurfa aðeins að eiga skólatösku, íþrótta- og sundföt í íþróttatösku (léttum bakpoka) ásamt nestisboxi. En heimafyrir þurfa allir af hafa aðgang að skriffærum til að nýta við heimavinnu.