Gjöf frá Slysavarnadeildinni Unu í Garði

Nemendur í 8. bekk fengu góða gjöf frá Slysavarnadeildinni Unu í Garði í dag. Nemendur fengu reykskynjara og bækling um eldvarnir heimila. 
 
Eldklár er síða sem stækkar og þar eru komin inn stutt myndbönd um reykskynjara og einnig gátlista og skráning í Eldklár sem við hvetjum öll heimili til þess að skrá sig í.