Forvarnadagurinn 2014

Forvarnardagur 2014 var að venju haldinn miðvikudaginn 1. október síðast liðinn. Nemendur í 9. AKE tóku að sjálfsögðu fullan þátt í deginum. Stjórnendur og umsjónarkennari héldu utan um dagskrá dagsins en að auki komu góðir gesti í skólann í tilefni dagsins. Sigurður Hilmar, forvarna- og frístundafulltrúi Sandgerðisbæjar kom og kynnti starfið sitt, framboð frístunda og þá forvarnavinnu sem fram fer hjá bænum og safnaði upplýsingum og góðum hugmyndum frá nemendum. Þá komu fulltrúar frá Björgunarsveitinni Sigurvon í Sandgerði og hittu nemendur, kynntu ungliðastarfið og hvöttu nemendur til að ganga til liðs við sveitina og taka þátt í skemmtilegu og uppbyggjandi starfi. Forvarnadagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu. Forvarnardagurinn er haldin að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Verkefnið er stutt af lyfjafyrirtækinu Actavis. Íslenskar rannsóknir sýna að þeir unglingar sem verja minnst klukkustund á dag með fjölskyldum sínum eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna. Að sama skapi sýna niðurstöður að mun ólíklegra sé að ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf, falli fyrir fíkniefnum. Í þriðja lagi sýna rannsóknirnar fram á að því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau neyti síðar fíkniefna. Niðurstöðurnar byggja á rannsóknum vísindamanna við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík sem hafa um árabil rannsakað áhættuhegðun ungmenna og hafa þær vakið alþjóðlega eftirtekt. Fleiri myndir er að finna í Myndasafni.   Myndband https://youtu.be/nj11OyObp8I