Farsæld í þágu barna - tengiliður Sandgerðisskóla

Öll börn eiga rétt á að fá þá þjónustu sem þau þurfa þegar á þarf að halda. Það getur verið flókið að fá aðstoð við hæfi og vita hvert eigi að leita eftir henni. Lögin eiga að tryggja að börn og foreldrar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum.

Farsæld barna eða samþætting þjónustu í þágu farsældar barna eru lög sem öll sveitarfélög, stofnanir og þjónustuveitendur sem vinna með börnum og ungmennum á landinu taka þátt í. Lögin tóku gildi í upphafi árs 2022 og eru sveitarfélög að gera ýmsar breytingar á verklagi og þjónustu í takt við lögin sem oft eru kölluð farsældarlögin.

Megin markmið laganna er að vinna saman að hagsmunum barns, þ.e. fjölskyldur, starfsfólk leik- og grunnskóla, félagsþjónusta, starfsfólk íþrótta- og tómstundastarfs og heilbrigðisþjónusta. Með auknu samstarfi og samráði gengur betur að vinna að hagsmunum og farsæld barna. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur lögin hér. https://www.farsaeldbarna.is/

Við skólann starfar tengiliður farsældar sem hefur ávallt hagsmuni barns að leiðarljósi og sinnir því hlutverki í góðu samstarfi við foreldra. Tengiliður farsældar hefur viðeigandi þekkingu til að vera innan handar og aðstoða við að sækja þjónustu við hæfi. Þannig geta foreldrar og börn leitað til eins aðila sem hefur yfirsýn yfir allt þjónustukerfið.

Tengiliður Sandgerðisskóla er Astrid E. Þorgrímsdóttir, smellið hér til að hafa samband.