- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Grunnskólinn í Sandgerði óskar eftir að ráða áhugasama grunnskólakennara til starfa næsta skólaár, 2016-2017. Grunnkólinn er Heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar. Alls eru 225 nemendur í 1.-10. bekk í Sandgerði. Sjá nánar um skólann á www.sandgerdisskoli.is. Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af kennslu og starfi með börnum. Leiðarljós skólans eru vöxtur, virðing, vilji og vinátta og endurspeglast þau í daglegu starfi skólans. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að setja sig inn í starfshætti skólans og geta hafið störf frá og með 15. ágúst. Grunnskólakennara vantar í eftirfarandi störf: Umsjónarkennslu á yngsta stig Umsjónarkennslu á miðsstig Stærðfræðikennslu á unglingastig Upplýsinga- og tæknimennt Nýbúakennslu Íslenskukennslu á unglingastig List- og verkgreinakennslu Sérkennslu (sérkennara) Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2016 Nánari upplýsingar veitir: Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, skólastjóri fanney@sandgerdisskoli.is og Elín Yngvadóttir, aðstoðarskólastjóri eliny@sandgerdisskoli.is
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is