Eiðurinn - kvikmyndasýning fyrir 9. og 10. bekk

Menntamálaráðuneytið hefur boðið öllum nemendum í  9. og 10. bekk landsins að sjá kvikmyndina Eiðinn. Í dag var komið að nemendum okkar. Myndin var sýnd í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ og sáum foreldrar um akstur á staðinn. Myndin var sýnd í forvarnarskyni og sjálfur Baltasar Kormákur fylgdi sýningunni eftir með erindi og umræðum að sýningu lokinni. Nemendur höfðu bæði gagn og gaman af myndinni.