Dagur íslenskrar tungu

Þann 16. nóvember sl. var dagur íslenskrar tungu. Eins og hefð er fyrir þá héldum við daginn hátíðlegan í skólanum. 

Nemendur og starfsfólk skólans mættu á sal og þar fór Bylgja skólastjóri yfir ævi og sögu Jónasar Hallgrímssonar en 16. nóvember var afmælisdagur hans og er dagurinn haldin hátíðlegur ár hvert. Vinningshafar úr Stóru upplestrarkeppninni frá því í vor lásu ljóð fyrir nemendur og starfsmenn skólans. Stóra- og litla upplestrarkeppnin var formlega sett með því að kennarar nemenda í 7. bekk og  4. bekk tóku við púltum sem þeir nota til að æfa sig fyrir keppnina næsta vor. 

Dagskránni lauk svo með fjöldasöng sem skólakórinn leiddi undir stjórn Elsu Mörtu við undirspil frá Hlyni Þór og Arnóri Sindra. 

Eftir dagskrá á sal lásu vinningshafar skólans frá því í vor sögur um vináttu fyrir nemendur á leikskólanum Grænuborg og ljóð fyrir heldri borgara í Miðhúsum. Nemendurnir stóðu sig einstaklega vel og voru sjálfum sér og skólanum til fyrirmyndar.

Við þökkum leikskólanum og Miðhúsum fyrir góðar móttökur.

Dagur íslenskrar tungu Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu Dagur íslenskrar tungu

Smellið hér til að sjá myndir af deginum.