Ávaxtastuð í 2. bekk

Við í 2. bekk höfum verið að kynnast hinum ýmsu ávöxtum m.a. Plómum og Mangó, sem hafa tengst ávexti vikunnar og hafa þessir ávextir verið í boði í hádeginu. Við tengdu þessa ávexti m.a. í ensku tíma og skoðuðum liti, lögun og heiti þeirra. Á föstudaginn s.l. var inni ávaxtalautarferð hjá okkur, þar sem við sátum saman og ræddum um hollustu þeirra og hvaða vítamín þeir gæfu okkur. Einnig ólíkar skoðanir á hver ávöxtur væri nú bestur og hvers vegna.

Fleiri myndir hér