Árshátíð unglingastigs Sandgerðisskóla

Árgangur 2009
Árgangur 2009

Árshátíð 7. – 10. bekkjar Sandgerðisskóla fór fram fimmtudagskvöldið 10. apríl og tókst með miklum glæsibrag.

Skemmtiatriðin voru fjölbreytt og skemmtileg. Nemendur stóðu sig með mikilli prýði.  

Kynnar kvöldsins voru Kristín Hrefna Ásmundsdóttir og Sesselja Ásta Svavarsdóttir úr 9. bekk. 

Nemendur tóku virkan þátt í öllum undirbúingi og sáu: 

  • 7. bekkur um að útbúa glæsilega fordrykki og bjóða gesti velkomna
  • 8. bekkur skreytti salinn, sem var sannarlega einn sá glæsilegasti sem sést hefur verið.
  • 9. bekkur sá um rósafhendingu og kveðju til 10. bekkjar
  • Foreldrar og forráðamenn 10. bekkjar buðu 10. bekk og starfsfólki skólans upp á veitingar fyrir árshátíð. 

Að loknum atriðum hófst ball fyrir nemendur í 7. – 10. bekk. Hljómsveitin HubbaBubba hitaði salinn upp og síðan hélt DJ Ragga Hólm uppi stuðinu til kl. 23:00. Nemendur úr Gerðaskóla tóku þátt í gleðinni.

Instamyndir komu með myndakassa á staðinn sem sló í gegn .

Við viljum hrósa nemendum fyrir frábæra framkomu og þátttöku – þau voru öll til mikillar fyrirmyndar og gerðu kvöldið einstaklega eftirminnilegt. Þakkir fær einnig allt starfsfólk, foreldrar og aðrir sem komu að skipulagi og framkvæmd.

Smellið hér til að sjá myndir frá viðburðinum.

Árshátíð 7. - 10. bekkjar Árshátíð 7. - 10. bekkjar Árshátíð 7. - 10. bekkjar

Árshátíð 7. - 10. bekkjar Árshátíð 7. - 10. bekkjar Árshátíð 7. - 10. bekkjar