31.03.2017
Fimmtudaginn 6. apríl 2017 er árshátíð nemenda Grunnskólans í Sandgerði. Árshátíðin verður haldin í skólanum.
Húsið opnar kl. 19:15 en skemmtunin hefst stundvíslega kl. 19:30. Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að koma og horfa á skemmtiatriðin. Börn yngri en 12 ára (6. bekk) verða að vera í fylgd með fullorðnum á meðan atriðin eru og fara heim með þeim að atriðum loknum.
Eftir skemmtidagskrá frá nemendum verður dansleikur.
Aðgangseyrir á ballið er 1000 krónur.
Plötusnúður á ballinu er Heiðar Austmann. Dansleiknum lýkur kl. 23:30
Hefðbundið skólahald fellur niður þennan dag.
Föstudaginn 7. apríl mæta nemendur í skólann kl. 9:55 (frí í fyrstu tveimur tímunum).
Bestu kveðjur,
Starfsfólk Grunnskólans í Sandgerði.