Árshátíð 7. - 10. bekkjar

Fimmtudaginn 22. mars 2018 er árshátíð nemenda Grunnskólans í Sandgerði.  Árshátíðin verður haldin í skólanum. Húsið opnar kl. 19:15 en skemmtunin hefst stundvíslega kl. 19:30.  Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að koma og horfa á skemmtiatriðin. Börn yngri en 12 ára (6. bekk) verða að vera í  fylgd með fullorðnum á meðan atriðin eru og fara heim með þeim að atriðum loknum. Eftir skemmtidagskrá frá nemendum verður dansleikur. Aðgangseyrir á ballið er 1000 krónur. Plötusnúður á ballinu er Heiðar Austmann. Dansleiknum lýkur kl. 23:30 Hefðbundið skólahald fellur niður þennan dag. Föstudaginn 23. mars mæta nemendur í skólann kl. 9:55 (frí í fyrstu tveimur tímunum).   Bestu kveðjur, Starfsfólk Grunnskólans í Sandgerði.