Árshátíð 1. - 6. bekkjar

Árshátíð Grunnskólans í Sandgerði verður haldin fimmtudaginn 22. mars. Nemendur í 1.- 6. bekk mæta í skólann kl.08:15 Skemmtun á sal hefst kl.12:15 og munu nemendur skólans sýna árshátíðaratriði einnig munu nemendur í skólahópi á Leikskólanum Sólborg og tónlistarskóla Sandgerðis taka þátt í árshátíðaratriðum. Við hvetjum alla foreldra og skyldmenni að koma í skólann og eiga ánægjulega stund með börnunum. Föstudaginn 23.mars er skertur skóladagur samkvæmt skóladagatali og þá lýkur skóladegi að loknum hádegismat. Við viljum benda á að Skólasel er lokað þann dag. Bestu kveðjur, Starfsfólk Grunnskólans í Sandgerði.