Árshátíð

Forráðamenn, mömmur, pabbar, ömmur, afar, frænkur, frændur og aðrir velunnarar.

Fimmtudaginn, 26. mars verður árshátíð Grunnskólans í Sandgerði. Nemendur í skólahópi leikskólans auk nemenda úr 1. -  6. bekk eru með sína árshátíð kl. 12:15 og munu þau sýna leikritið Kardemommugerði á sal skólans.

Nemendur í 7. - 10. bekk eru með sína árshátíð um kvöldið kl. 19:30 þar sem hver bekkur er með atriði og svo verður dansleikur að árshátíð lokinni.

Hvetjum alla til að koma og eiga góða stund með okkur.