Áfram Ísland !

Í dag mættu nemendur og starfsfólk í skólann klædd Íslandslitunum í tilefni landsleiksins í dag.

Sveindís Jane okkar er að keppa með landsliðinu í dag og vildu nemendur og starfsmenn senda henni og liðinu risa stuðningskveðju!

Áfram Ísland!

A landslið kvenna mætir Lettlandi í undankeppni EM 2022 á Laugardalsvelli í dag, fimmtudag, og hefst leikurinn kl. 18:45.