ADHD samtökin verða í Reykjanesbæ þriðjudaginn 29. apríl 201

ADHD samtökin verða í Reykjanesbæ þriðjudaginn 29. apríl 2014


• Kynningarfundur fyrir fagfólk, stuðningsfulltrúa og aðra
• Spjallfundur fyrir foreldra

Kynningarfundur fyrir fagfólk, stuðningsfulltrúa og aðra
Kynningarfundur ADHD samtakanna verður haldinn í Reykjanesbæ þriðjudaginn 29. apríl 2014 kl. 14:30 í sal Holtaskóla við Sunnubraut, í samvinnu við Velferðarráðuneytið. Fundurinn er ætlaður starfsfólki leik-, grunn- og framhaldsskóla, sérfræðingum í skóla- og félagsþjónustu og öllum þeim sem starfa með börnum, ungmennum eða fullorðnum með ADHD. 
Foreldrar eru velkomnir.

Efni fundar: Hvað er ADHD og hvað gera ADHD samtökin?
Elín Hoe Hinriksdóttir sérkennari og formaður stjórnar ADHD samtakanna og Björk Þórarinsdóttir gjaldkeri ADHD samtakanna kynna samtökin.

Dagskrá
1. Hvað er ADHD? 
Birtingarmyndir, orsakir og afleiðingar
2. ADHD á mismunandi aldursskeiðum.
Börn, unglingar, fullorðnir.
3. Greining og meðferðarleiðir.
4. Skóli, nám og teymisvinna.
5. Sjónarhóll ráðgjafamiðstöð. 
6. Framtíðarhorfur.
7. Hvað gera ADHD samtökin og fyrir hvern eru þau?
8. Helstu verkefni samtakanna. 
Hlutverk, starfsemi, baráttumál, námskeið og fræðsla
9. Fyrirspurnir

Spjallfundur fyrir foreldra
Klukkan 20:00 í sal Holtaskóla við Sunnubraut, verður spjallfundur sem Björk og Elín stýra fyrir foreldra barna og ungmenna með ADHD. Ekki er um fyrirlestur að ræða.
Hvetjum foreldra barna í leik-, grunn- og framhaldsskóla til að mæta.

Fundirnir eru öllum opnir og kosta ekkert.