Stóra upplestrarkeppnin

Undankeppni fyrir Stóru upplestrarkeppnina fór fram í skólanum, þriðjudaginn 5. mars. Nemendur í 7. bekk hafa verið við æfingar frá því í haust og var þetta lokapunktur keppninnar innan skólans. Allir nemendur hafa lagt mikin metnað í æfingar í vetur fyrir keppnina og var keppnin því virkilega hörð í ár. Þrír fulltrúar  munu nú hefja þjálfun fyrir keppni sem fram fer í Gerðaskóla - Garði, 14. mars næst komandi. Þar mætast fjórir skólar: Sandgerðisskóli, Gerðaskóli, Grunnskólinn í Grindavík og Stóru-Vogaskóli. Það voru þau Alexander Freyr Andrésson, Díana Guðrún Kristinsdóttir og Sara Mist Atladóttir sem valin voru til að keppa fyrir hönd Sandgerðisskóla þetta árið og óskum við þeim til hamingju með árangurinn.