Starfsgreinakynning mánudaginn 3. febrúar.

Starfsgreinakynning var haldin á mánudaginn 3. febrúar í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Þar voru fulltrúar frá um 60 starfsgreinum að kynna þeirra starfsgreinar fyrir elstu nemendur allra grunnskólana á Suðurnesjum. Nemdendur í 9. og 10. bekk Grunnskólans í Sandgerði fóru saman með rútu og kynntu sér þær starfsgreinar sem þau höfðu áhuga á. 7. og 8. bekkurinn hafði einnig tækifæri til að mæta með foreldrum sínum á kynninguna eftir hádegi.