Opnir tímar í íþróttasalnum

Í vetur verða opnir tímar í íþróttasalnum á miðvikudögum kl. 13:15 – 14:35 fyrir nemendur í 7. – 10. bekk. Nemendur í 7. og 8. bekk geta mætt kl. 13:55 þegar þau ljúka skóladeginum. Tímarnir voru mjög vinsælir á síðasta skólaári og var farið í alls kyns leiki og margar mismunandi íþróttir prófaðar.

Íþróttaráð skólans sér um að skipuleggja tímana en Hólmar Örn íþróttakennari mun alltaf vera á staðnum til að aðstoða við umgjörð.

Við í grunnskólanum hvetjum alla í 7. -10. bekk að koma og hreyfa sig.