Fulltrúar skólans í Stóru upplestrarkeppninni

Undankeppni fyrir Stóru upplestrarkeppnina fór fram í skólanum í gær. Nemendur í 7. bekk hófu æfingar og undirbúning eftir Dag íslenskrar tungu þann 16. nóvember síðast liðinn og var þetta lokapunktur keppninnar innan skólans. Allir keppendur stóðu sig virkilega vel, lögðu mikinn metnað í æfingar og var keppnin því virkilega hörð í ár. 

Eva María Helgadóttir nemandi í 6. bekk og Tónlistarskóla Sandgerðis sá um tónlistaratriðið söng og spilaði á píanó.

Þrír fulltrúar munu nú hefja þjálfun fyrir lokakeppnina, en að þessu sinni er Sandgerðisskóli gestgjafi keppninnar sem haldin verður 18.apríl nk. kl. 16:00. Þar mætast fjórir skólar: Sandgerðisskóli, Gerðaskóli, Grunnskólinn í Grindavík og Stóru-Vogaskóli.

Það voru þau Elísabet Margrét Finnsdóttir Kjærbo, Emil Akay Tas og Ríkey Guðrún Vigfúsdóttir sem valin voru til að vera fulltrúar Sandgerðisskóla í keppninni þetta árið og óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn og góðs gengis í lokakeppninni.